English Icelandic
Birt: 2023-12-05 17:39:25 CET
Kvika banki hf.
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Kvika banki hf.: Niðurstaða útboðs víkjandi skuldabréfa

Kvika banki hf. lauk í dag útboði á nýjum flokki víkjandi skuldabréfa, KVIKA 34 1211 T2i, sem teljast til eiginfjárþáttar 2 (e. tier 2). Heildareftirspurn í útboðinu var 4.820 m.kr.

Samþykkt tilboð voru samtals 2.000 m.kr. en heildarútgáfa í flokknum verður takmörkuð við 4.000m.kr. og voru bréfin seld á pari.

Víkjandi skuldabréfin eru verðtryggð og bera 6,25% árlega fasta vexti. Lokagjalddagi flokksins er 11. desember 2034 og er hann innkallanlegur af hálfu útgefanda frá og með vaxtagjalddaga þann 11. desember 2029 og á vaxtagjalddögum þar á eftir.

Skuldabréfin verða gefin út undir EMTN grunnlýsingu bankans og skráð í kauphöll Nasdaq Iceland.


Nánari upplýsingar veita fjárfestatengsl Kviku banka á netfanginu fjarfestatengsl@kvika.is