Arion banki lauk í dag útboði á sértryggða skuldabréfaflokknum ARION CBI 28 fyrir samtals 4.840 m.kr.
Í flokkinn ARION CBI 28 bárust 22 tilboð að fjárhæð 5.080 m.kr. að nafnvirði á ávöxtunarkröfu á bilinu 4,13 – 4,25%. Tilboð að nafnvirði 4.840 m.kr. voru samþykkt á kröfunni 4,19%. Bankinn gefur einnig út 4.000 m.kr. í flokknum til eigin nota. Heildarstærð flokksins verður 17.940 m.kr. eftir útgáfuna.
Stefnt er að töku skuldabréfanna til viðskipta í Nasdaq Iceland þann 12. desember 2024.
Skuldabréfin eru gefin út undir útgáfuramma sértryggðra skuldabréfa. Grunnlýsing útgáfurammans má nálgast hér.
Umsjónaraðili útboðsins er Markaðsviðskipti Arion banka.
Vinsamlegast beinið fyrirspurnum til:
Theodórs Friðbertssonar, fjárfestatengslum Arion banka, ir@arionbanki.is, s. 856 6760, eða Eiríks Dórs Jónssonar, forstöðumanns fjárstýringar, eirikur.jonsson@arionbanki.is, s. 856 7171