English Icelandic
Birt: 2024-04-10 19:07:00 CEST
Arion banki hf.
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Arion banki hf.: Niðurstaða útboðs sértryggðra skuldabréfa

Arion banki hf. lauk í dag útboði á sértryggða skuldabréfaflokknum ARION CBI 30 fyrir samtals 1.680 m.kr.

Samtals bárust 12 tilboð að fjárhæð 2.440 m.kr að nafnvirði á ávöxtunarkröfu á bilinu 3,54 - 3,64%. Tilboð að nafnvirði 1.680 m.kr. voru samþykkt á kröfunni 3,59%. Heildarstærð flokksins verður 20.660 m.kr. eftir útgáfuna.

Stefnt er að töku skuldabréfanna til viðskipta í Nasdaq Iceland þann 17. apríl 2024.

Skuldabréfin eru gefin út undir útgáfuramma Arion banka fyrir sértryggð skuldabréf. Grunnlýsingu útgáfurammans má nálgast hér.

Umsjónaraðili útboðsins er Markaðsviðskipti Arion banka.


Arion banki hf. Niurstaa utbos sertryggra skuldabrefa.pdf