Góð afkoma þrátt fyrir áskoranir í rekstri
Hagnaður af grunnrekstri Landsvirkjunar á þriðja ársfjórðungi nam 8,7 milljörðum króna og handbært fé frá rekstri 8,5 milljörðum.
Áfram vex fjárhagslegur styrkur fyrirtækisins, eiginfjárhlutfall er 62,4% og skuldsetning er 1,48× rekstrarhagnaður fyrir afskriftir.
Rekstrartekjur lækkuðu á tímabilinu miðað við sama tíma metársins 2023, þar sem selt magn dróst saman, verðtenging í einstökum samningi breyttist og innleystar áhættuvarnir drógust saman á milli ára.
Hörður Arnarson, forstjóri:
„Rekstur fyrirtækisins gengur áfram vel í sögulegum samanburði, þótt hann jafnist ekki á við metafkomu ársins 2023. Hagnaður af grunnrekstri á þriðja ársfjórðungi nam 65 milljónum bandaríkjadala, eða rúmlega 8,7 milljörðum króna og dróst saman um 31%.
Aðstæður voru áfram krefjandi á þriðja fjórðungi. Vatnsbúskapur var sögulega lakur eftir þurrt og kalt sumar á hálendinu og litla bráðnun jökla. Rekstrartekjur drógust saman miðað við sama tímabil 2023 í takti við minna selt magn, auk breytinga á verðtengingu í samningi við stórnotanda og lækkunar innleystra áhættuvarna.
Fjárhagslegur styrkur Landsvirkjunar vex áfram. Eiginfjárhlutfall er nú rúmlega 62% og lánshæfismatsfyrirtækið S&P staðfesti A- langtímaeinkunn fyrirtækisins með stöðugum horfum í lok september.“
Viðhengi
