English Icelandic
Birt: 2022-10-25 19:27:00 CEST
Origo hf.
Fyrirtækjafréttir

Origo hf. - Uppgjör 3. ársfjórðungs 2022 og fjárfestafundur um Syndis

Origo hf. mun birta afkomu fyrir þriðja ársfjórðung 2022 eftir lokun markaða föstudaginn 28.október næstkomandi.

Eins og áður hefur verið tilkynnt um mun Origo ekki halda hefðbundnar fjárfestakynningar fyrir niðurstöður fyrsta og þriðja ársfjórðungs. Þess í stað mun félagið bjóða fjárfestum og markaðsaðilum til kynningar á einstökum rekstrarþáttum félagsins. Með þessu móti fá fjárfestar tækifæri til að kynnast félaginu enn betur. Fjárfestakynningar annars og fjórða ársfjórðungs verða með hefðbundnu sniði.

Origo býður fjárfestum og markaðsaðilum til fundar með stjórnendum Syndis föstudaginn 4. nóvember kl. 08:30.

Á fundinum munu stjórnendur kynna fyrirtækið og þá vegferð sem það er á. Í kjölfarið á kynningunni verður opnað fyrir spurningar úr sal.
Fundurinn verður haldinn í húsnæði Origo og Syndis, Borgartúni 37, 105 Reykjavík.

Skráning á fundinn fer fram hér: https://www.origo.is/fjarfestakynning
 
Nánari upplýsingar
Gunnar Petersen framkvæmdastjóri fjármálasviðs í síma 825-9001 eða gp@origo.is


Origo hf. - Uppgjor 3. arsfjorungs 2022 og fjarfestafundur um Syndis.pdf