Almenna leigufélagið ehf., kt. 611013-0350, Suðurlandsbraut 30, 108 Reykjavík, Íslandi hefur birt viðauka við grunnlýsingu í tengslum við 30.000.000.000 króna útgáfuramma skuldabréfa og víxla félagsins, sem er dagsett 10. desember 2018. Viðaukinn sem er dagsettur 11. september 2019 hefur verið staðfestur af Fjármálaeftirlitinu.
Viðaukinn er á íslensku og er birtur með rafrænum hætti á vef Almenna leigufélagsins ehf., https://www.al.is/#!/investors/bond-issuance. Fjárfestar geta einnig nálgast viðaukann og grunnlýsinguna sér að kostnaðarlausu á skrifstofu Almenna leigufélagsins ehf. að Suðurlandsbraut 30, 108 Reykjavík, á gildistíma grunnlýsingarinnar.
Nánari upplýsingar veitir:
María Björk Einarsdóttir framkvæmdastjóri í síma 774 0604 eða maria@al.is
Reykjavík , 11. september 2019