Icelandic
Birt: 2026-01-08 13:33:04 CET
Reykjavíkurborg - Fjárhagsdagatal

Útgáfuáætlun Reykjavíkurborgar á fyrri hluta árs 2026

Borgarráð samþykkti á fundi sínum 8. janúar 2026 útgáfuáætlun Reykjavíkurborgar fyrir fyrri hluta ársins 2026. Samkvæmt samþykktri fjárhagsáætlun fyrir árið 2026 er gert ráð fyrir að lántaka borgarsjóðs nemi allt að 14.000 m.kr. á árinu.

Lántakan verður framkvæmd með stækkun á virkum skuldabréfaflokkum borgarsjóðs, útgáfu á nýjum skuldabréfaflokkum, ádrætti á erlent lán frá CEB eða öðrum þeim hætti sem álitinn er hagkvæmur út frá markaðsaðstæðum hverju sinni. Með hliðsjón af lánastýringu kemur m.a. til greina að framkvæma skiptiútboð eða uppkaup á útistandandi skuldabréfaflokkum, endurgreiða lán frá viðskiptabönkum og gefa út nýja skuldabréfaflokka.

Skuldabréfaútboð Reykjavíkurborgar á fyrri hluta ársins eru fyrirhuguð á eftirfarandi dögum:

  • 14. janúar
  • 25. febrúar
  • 18. mars
  • 15. apríl

Árið 2024 var undirritaður samningur við CEB um allt að EUR 100 milljóna fjármögnun á viðhaldsátaki í húsnæði grunnskóla, leikskóla og frístundar vegna fjárhagsáranna 2023-2028. Í desember 2024 var fyrsti ádráttur á lánið að fjárhæð EUR 16 milljónir og í framhaldinu gerður vaxta- og gjaldmiðlaskiptasamningur fyrir sömu fjárhæð. Í desember 2025 var annar ádráttur á lánið að fjárhæð EUR 19 milljónir. Í samræmi við framvindu á viðhaldsátakinu og með tilliti til markaðsaðstæðna má gera ráð fyrir að dregið verði á lán hjá CEB á þessu ári en eftirstöðvar lánsfjárhæðar nema EUR 65 milljónum.

Útgáfuáætlun er lögð fram til að auka fyrirsjáanleika á markaði en Reykjavíkurborg áskilur sér rétt til að bregða út af þessari áætlun, fella niður útboð og/eða bæta við útboðsdögum.

Niðurstöður hvers útboðs og tillögur verða lagðar fyrir borgarráð, daginn eftir útboð, til endanlegrar afgreiðslu og síðan kynntar opinberlega.

Nánari upplýsingar veitir:


Bjarki Rafn Eiríksson
Skrifstofa fjárstýringar og innheimtu
bjarki.rafn.eiriksson@reykjavik.is