English Icelandic
Birt: 2024-05-13 19:08:00 CEST
Íslandsbanki hf.
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Íslandsbanki hf.: Niðurstaða útboðs sértryggðra skuldabréfa

Íslandsbanki hf. lauk í dag útboði á sértryggðum skuldabréfum. Heildareftirspurn í útboðinu var 8.360 m.kr.

Samþykkt tilboð í verðtryggða flokkinn ISB CBI 29 voru samtals 940 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 3,74%. Heildartilboð voru 7.060 m.kr. á bilinu 3,73% til 3,87%. Bankinn gefur einnig út 10.000 m.kr. í flokknum til eigin nota.

Samþykkt tilboð í óverðtryggða flokkinn ISB CBF 27 voru samtals 920 m.kr. á 1 mánaða REIBOR + 0,25%. Heildartilboð voru 1.300m.kr. á kröfunni REIBOR + 0,24% til REIBOR + 0,40%. Seld verða áður útgefin bréf í eigu bankans.


Islandsbanki hf. Niurstaa utbos sertryggra skuldabrefa.pdf