English Icelandic
Birt: 2026-01-08 12:37:00 CET
Arion banki hf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Arion banki hf.: Niðurstaða skiptiútboðs sértryggðra skuldabréfa

Niðurstaða skiptiútboðs leiðir til þess að Arion banki kaupir 1.660 m.kr. að nafnvirði í flokknum ARION CBI 26.

Í tengslum við útboð Arion banka í gær á sértryggða skuldabréfaflokknum ARION CBI 31 bauðst eigendum flokksins ARION CBI 26 að selja bréf sín á fyrirframákveðna hreina verðinu 99,6393 gegn kaupum í útboðinu.
Niðurstaða skiptiútboðs leiðir til þess að Arion banki kaupir 1.660 m.kr. að nafnvirði í flokknum ARION CBI 26.

Uppgjör endurkaupanna fer fram þann 14. janúar 2026.

Markaðsviðskipti Arion banka höfðu umsjón með útboðinu.

Arion banki hf. Niurstaa skiptiutbos sertryggra skuldabrefa.pdf