Icelandic
Birt: 2026-02-26 11:50:18 CET
Reykjavíkurborg - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Reykjavíkurborg: Útgáfa á nýjum skuldabréfaflokki

Í borgarráði í dag, 26. febrúar, var samþykkt heimild til fjármála- og áhættustýringarsvið að leita tilboða og samþykkja tilboð í umsjón með útgáfu á nýjum óverðtryggðum skuldabréfaflokki með breytilegum eða föstum vöxtum. Útgáfa í nýjum skuldabréfaflokki yrði innan samþykktrar lántökuáætlunar fyrir árið 2026. Tilgangur útgáfunnar væri fjármögnun fjárfestinga, lánastýring og til að auka úrval fjárfestingarkosta á skuldabréfamarkaði.

Nánari upplýsingar veitir:

Halldóra Káradóttir

Sviðsstjóri fjármála- og áhættustýringarsviðs

netfang: halldora.karadottir@reykjavik.is