English Icelandic
Birt: 2021-12-09 18:50:04 CET
Kvika banki hf.
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Kvika banki hf.: Kvika gefur út græn skuldabréf í fyrsta sinn

KVIKA 24 1216 GB

Kvika banki hf. hélt í dag lokað útboð í skuldabréfaflokknum KVIKA 24 1216 GB. Heildartilboð í útboðinu námu samtals 5.420 m.kr. Samþykkt voru tilboð fyrir samtals 4.500m.kr. á 0,90% álagi yfir 3 mánaða REIBOR vöxtum og eru skuldabréfin seld til breiðs hóps innlendra fjárfesta. Skuldabréfin eru til 3 ára og bera fljótandi vexti sem greiddir eru ársfjórðungslega.

Stefnt er að töku skuldabréfanna til viðskipta á markaði Nasdaq Iceland fyrir sjálfbær skuldabréf þann 16. desember næstkomandi. Skuldabréfin verða gefin út undir skuldabréfaramma Kviku með vísan í græna fjármálaumgjörð bankans.

Nánari upplýsingar veitir Halldór Karl Högnason, forstöðumaður fjárstýringar í síma 540-3200.