English Icelandic
Birt: 2022-06-08 18:52:44 CEST
Íslandsbanki hf.
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Islandsbanki hf.: Niðurstaða útboðs sértryggðra skuldabréfa

Íslandsbanki hf. lauk í dag útboði á sértryggðum skuldabréfum. Heildareftirspurn í útboðinu var 2.640 m.kr.

Samþykkt tilboð í óverðtryggða flokkinn ISB CB 27 voru samtals 420 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 6,54%. Heildartilboð voru 420 m.kr. á bilinu 6,52% - 6,54%. Seld verða áður útgefin bréf í eigu bankans. Útgefið nafnverð í flokknum er 53.840 m.kr.

Samþykkt tilboð í óverðtryggða flokkinn ISB CBF 27 voru samtals 100 m.kr. á 1 mánaða REIBOR + 0,40%. Seld verða áður útgefin bréf í eigu bankans og hafa þá verið seld bréf í flokknum fyrir 3.300 m.kr. að nafnvirði. Útgefið nafnverð í flokknum er 10.000 m.kr.

Samþykkt tilboð í verðtryggða flokkinn ISB CBI 28 voru samtals 1.920 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 0,89%. Heildartilboð voru 2.120 m.kr. á bilinu 0,81% - 0,95%. Seld verða áður útgefin bréf í eigu bankans. Útgefið nafnverð í flokknum verður 36.200 m.kr. eftir útgáfuna.

Í tengslum við útboðið bauðst eigendum flokksins ISB CBI 22 að selja bréf í flokknum gegn kaupum á skuldabréfum í ofangreindu útboði. Hreint verð á flokknum var fyrirfram ákveðið sem 100,878. Bankinn kaupir til baka 140 m.kr. að nafnvirði í flokknum.

Nánari upplýsingar veita: Fjárfestatengsl - ir@islandsbanki.is