Alma íbúðafélag hf.: Útgáfa á víxlumAlma íbúðafélag hf.: Útgáfa á víxlum Alma íbúðafélag hf. hefur lokið sölu á víxlum í tveimur flokkum til 3ja og 6 mánaða. Samtals bárust tilboð að fjárhæð 1.400 m.kr. Alma hefur ákveðið að taka tilboðum að fjárhæð 1.180 m.kr. í 3ja mánaða óverðtryggða víxilinn með 11,10% vöxtum og 220 m.kr. í 6 mánaða óverðtryggða víxilinn með 11,18% vöxtum eða samtals 1.400 m.kr. Áður hafði félagið selt 520 m.kr. á 11,21% vöxtum í víxilinn AL240315. Heildarstærð útgáfunnar nemur því 1.700 m.kr. Arctica Finance hf. hafði umsjón með sölu víxlanna. Greiðslu- og uppgjörsdagur er föstudaginn 15. desember 2023. Nánari upplýsingar veitir: Sigurður Rúnar Pálsson, fjármálastjóri Alma íbúðafélag hf., í síma 848 5290 eða sigurdur@al.is
|