Kvika banki hf.: Afkoma Kviku banka á þriðja ársfjórðungi 2024Á stjórnarfundi þann 6. nóvember 2024 samþykktu stjórn og forstjóri árshlutauppgjör samstæðu Kviku banka hf. („Kvika“) fyrir þriðja ársfjórðung og fyrstu níu mánuði ársins 2024. Í árshlutareikningi samstæðu Kviku fyrir fyrstu níu mánuði ársins 2024 er tryggingafélagið TM tryggingar hf. („TM“) flokkað sem eign haldið til sölu. Þar af leiðandi og í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla færir samstæðan tekjur af starfsemi TM í einni línu í rekstrarreikningi sem hagnað eftir skatta af aflagðri starfsemi. Samanburðartölur við rekstur ársins 2023 hafa verið uppfærðar til samræmis. Helstu atriði í afkomu þriðja ársfjórðungs (3F 2024) - Hagnaður fyrir skatta af áframhaldandi starfsemi nam 1.813 milljónum króna, samanborið við 234 m.kr. á 3F 2023 og eykst um 1.579 m.kr.
- Hagnaður samstæðunnar í heild eftir skatta nam 2.363 m.kr. á 3F 2024, samanborið við 544 m.kr. á 3F 2023 og eykst um 1.819 m.kr.
- Hreinar vaxtatekjur námu 2.429 m.kr. á 3F 2024, samanborið við 1.849 m.kr. á 3F 2023 og hækkuðu því um 31% frá fyrra ári.
- Vaxtamunur var 3,7% á 3F 2024, samanborið við 3,2% á 3F 2023.
- Hreinar þóknanatekjur voru 1.552 m.kr. á 3F 2024, samanborið við 1.324 m.kr. á 3F 2023 og hækkuðu því um 17% frá fyrra ári.
- Aðrar rekstrartekjur námu 474 milljónum króna á 3F 2024 en þær voru neikvæðar sem námu 148 m.kr. á 3F 2023 og munar þar helst um 665 m.kr. viðsnúning fjárfestingatekna.
- Rekstrarkostnaður nam 2.344 milljónum króna á 3F 2024, samanborið við 2.633 milljónir króna á 3F 2023 og lækkar um 11% á milli ára.
- Arðsemi efnislegs eigin fjár (RoTE) fyrir skatta af áframhaldandi starfsemi var 22,4%.
- Hagnaður á hlut nam 0,50 kr. á 3F 2024, samanborið við 0,11 kr. á 3F 2023.
Afkoma af eignum haldið til sölu: - Afkoma eigna haldið til sölu eftir skatta, sem samanstendur eingöngu af rekstri dótturfélagsins TM, er samandregin í einni línu í rekstrareikningi og nam 965 milljónum króna á 3F 2024, samanborið við 631 m.kr. á 3F 2023.
- Samsett hlutfall trygginga nam 86,0%, samanborið við 87,5% á þriðja ársfjórðungi 2023.
Helstu atriði efnahags: - Innlán frá viðskiptavinum námu 149 milljörðum króna, samanborið við 134 ma.kr. í lok árs 2023 og jukust um 12% á tímabilinu.
- Útlán til viðskiptavina voru 146 milljarðar króna, samanborið við 136 ma.kr. í lok árs 2023 og jukust um 7,1% á tímabilinu.
- Heildareignir námu 364 milljörðum króna, samanborið við 335 ma.kr. í lok árs 2023.
- Eigið fé samstæðunnar var 86 milljarðar króna í lok tímabilsins, samanborið við 82 ma.kr. í lok árs 2023.
- Eiginfjárhlutfall samstæðunnar (CAR) var 23,5%, samanborið við 22,6% í lok árs 2023 og var gjaldþolshlutfall fjármálasamsteypunnar 1,24 í lok tímabilsins.
- Heildar lausafjárþekjuhlutfall (LCR) samstæðunnar var 780%, samanborið við 247% í lok árs 2023.
- Heildareignir í stýringu námu 440 milljörðum króna, samanborið við 470 ma.kr. í lok árs 2023.
Helstu atriði fyrstu níu mánaða ársins 2024: - Hagnaður fyrir skatta af áframhaldandi starfsemi nam 4.217 milljónum króna, samanborið við 2.646 m.kr. á sama tímabili árið 2023
- Hagnaður samstæðunnar í heild eftir skatta nam 4.703 milljónum króna, samanborið við 2.456 m.kr. á sama tímabili árið 2023
- Hreinar vaxtatekjur námu 7.183 milljónum króna, samanborið við 5.690 m.kr. á sama tímabili árið 2023 og hækkuðu um 26% frá fyrra ári.
- Vaxtamunur var 3,9% á fyrstu níu mánuðum ársins 2024.
- Hreinar þóknanatekjur námu 4.536 milljónum króna, samanborið við 4.339 m.kr. á sama tímabili árið 2023 og hækkuðu um 5% frá fyrra ári.
- Aðrar rekstrartekjur námu 800 milljónum króna, samanborið við 821 m.kr. á sama tímabili árið 2023.
- Rekstrarkostnaður nam 7.744 milljónum króna á, samanborið við 8.006 milljónir króna á sama tímabili árið 2023 og lækkar um 3%.
- Arðsemi efnislegs eigin fjár (RoTE) fyrir skatta af áframhaldandi starfsemi nam 18,1% á fyrstu níu mánuðum ársins 2024.
- Hagnaður á hlut nam 1,00 kr. á fyrstu níu mánuðum ársins 2024, samanborið við 0,51 kr. á sama tímabili árið 2023.
Afkoma af eignum haldið til sölu: - Afkoma eigna haldið til sölu eftir skatta, sem samanstendur eingöngu af rekstri dótturfélagsins TM tryggingar, er samandregin í einni línu í rekstrareikningi og nam 1.541 milljónum króna á fyrstu níu mánuðum ársins 2024, samanborið við 741 m.kr. á sama tímabili árið 2023.
- Samsett hlutfall trygginga nam 95,9%, samanborið við 94,0% á sama tímabili árið 2023. Brunatjón í Kringlunni í sumar hefur veruleg áhrif á samsett hlutfall milli ára.
Ármann Þorvaldsson, forstjóri Kviku: „Það er afar ánægjulegt að sjá þann mikla viðsnúning sem verið hefur á rekstri bankans að undanförnu og endurspeglast í uppgjöri þriðja ársfjórðungs. Bankinn er að ná arðsemismarkmiðum sínum af áframhaldandi rekstri, en hagnaður fyrir skatta í fjórðungnum margfaldaðist milli ára og nam 1.813 m.kr., sem nemur 22,4% arðsemi efnislegs eiginfjár fyrir skatta. Mikill vöxtur er í öllum tekjuliðum milli ára. Vöxtur í lánabók og aukning vaxtamunar skiluðu tæplega 600 m.kr. aukningu í vaxtatekjum milli ára. Þá var mikill viðsnúningur í hreinum fjárfestingatekjum sem voru rúmlega 400 m.kr. á fjórðungnum en voru neikvæðar á sama tímabili í fyrra en viðsnúningur fjárfestingartekna skýrist að mestu af því að eigin fjárfestingar bankans á Íslandi og í Bretlandi gengu vel í fjórðungnum. Þóknanatekjur vaxa um 17% á milli ára sem má helst rekja til aukinna umsvifa Straums og aukinna útlánaþóknana. Árangur bankans þegar kemur að kostnaði hefur verið einstaklega góður síðastliðið ár og erfiðar aðhaldsaðgerðir hafa skilað miklum árangri. Rekstrarkostnaður í fjórðungnum lækkaði um nærri 300 milljónir króna samanborið við sama fjórðung í fyrra sem verður að teljast frábær árangur í umhverfi mikillar verðbólgu og launahækkana. Eiginfjárstaða bankans er að vanda mjög sterk og lausafjárhlutfall hans hefur sjaldan verið hærra. Allar viðskiptaeiningar eru að skila afkomu um eða yfir áætlunum félagsins og er sérstaklega ánægjulegt að sjá þann viðsnúning sem verið hefur á starfsemi félagins í Bretlandi. Rekstur TM gekk einnig mjög vel á ársfjórðungnum, hvort sem horft er til tryggingareksturs eða fjárfestinga og jókst hagnaður félagsins um rúmlega 300 m.kr. milli ára. Þá veitti Fjármálaeftirlitið samþykki sitt fyrir kaupum Landsbankans á TM á fjórðungnum, en enn er beðið eftir samþykki Samkeppniseftirlitsins. Ljóst er að væntanleg sala mun styrkja verulega eiginfjárstöðu bankans og gera honum kleift að nýta fjölmörg tækifæri til vaxtar á næstu misserum, eins og nánar verður farið yfir á Fjárfestadegi Kviku sem haldinn verður fimmtudaginn 7.nóvember.“
Kynningarfundur og fjárfestakynning Kynningarfundur fyrir hluthafa og markaðsaðila verður að þessu sinni samtvinnaður Fjárfestadegi Kviku sem haldinn verður fimmtudaginn 7.nóvember kl. 12:00 í Norðurljósasal Hörpu. Á viðburðinum munu stjórnendur Kviku kynna stefnu og áherslur félagsins í kjölfar væntrar sölu TM auk þess að farið verður yfir helstu atriði í uppgjöri félagsins fyrir þriðja ársfjórðung 2024 Fundinum verður jafnframt streymt á íslensku á eftirfarandi vefslóð: https://kvika.is/fjarfestadagur2024/
Meðfylgjandi er fjárfestakynning. Að auki mun upptaka með enskum texta vera gerð aðgengileg á vefsvæði Kviku.
|