Í tilkynningu Festi, dags. 10. apríl 2024, var m.a. frá því greint að félagið og Olís, dótturfélag Haga, hefðu komist að samkomulagi um að hefja undirbúning sölumeðferðar á eignarhlutum félaganna í Olíudreifingu ehf. („Olíudreifing“).
Í framhaldi af þeirri undirbúningsvinnu sem átt hefur sér stað hafa Festi og Olís komist að samkomulagi um að hefja í dag formlegt söluferli á eignarhlutum félaganna í Olíudreifingu.
Fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka hefur verið falin umsjón með söluferlinu en unnt er að nálgast frekari upplýsingar um ferlið á netfangið project_stream@islandsbanki.is.
Nánar verður upplýst um framgang söluferlisins um leið og tilefni er til.
Olíudreifing er 60% í eigu Festi og 40% í eigu Olís.
Félagið er mikilvægt innviðafélag hvað varðar birgðahald og dreifingu á eldsneyti á Íslandi.
Þessar upplýsingar eru birtar í opinberlega samræmi við upplýsingaskyldu Festi hf. skv. reglugerð Evrópusambandsins um markaðssvik nr. 596/2014 (MAR), sbr. lög nr. 60/2021 um aðgerðir gegn markaðssvikum. Upplýsingarnar varða ákvörðun um að hefja söluferli á eignarhlutum í Olíudreifingu ehf. sem töldust fela í sér innherjaupplýsingar í skilningi 7. gr. MAR. Tilkynning þessi er gerð opinber af Sölva Davíðssyni, regluverði Festi hf., í samræmi við upplýsingaskyldu félagsins samkvæmt MAR og 2. gr. framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EU) 2016/1055. Upplýsingarnar voru opinberlega birtar kl. 17:00.