English Icelandic
Birt: 2026-06-10 14:01:39 CEST
Landsbankinn hf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Landsbankinn hf.: Niðurstaða skiptiútboðs sértryggðra skuldabréfa

Í tengslum við útboð Landsbankans á sértryggðum skuldabréfum í gær fór fram skiptiútboð þar sem fjárfestar áttu kost á því að greiða fyrir skuldabréf í útboðinu með afhendingu skuldabréfa í flokki LBANK CBI 26 á fyrirframákveðna verðinu 99,366.

Niðurstaða skiptiútboðs leiðir til þess að Landsbankinn kaupir 2.060 m.kr. að nafnverði í flokki LBANK CBI 26.

Uppgjör endurkaupanna fer fram þann 16. júní 2026.