Landsbankinn lauk í dag sölu á skuldabréfum með breytilegum vöxtum til tveggja ára að fjárhæð 850 milljónir sænskra króna. Gert er ráð fyrir að skuldabréfin fái lánshæfiseinkunnina BBB frá S&P Global Ratings. Skuldabréfin voru seld á kjörum sem jafngilda 65 punkta álagi á þriggja mánaða millibankavexti í sænskum krónum.
Skuldabréfin verða gefin út undir EMTN-útgáfuramma bankans og er stefnt að töku skuldabréfanna til viðskipta á Euronext Dublin þann 19. janúar 2022.
Umsjónaraðilar sölunnar voru Nordea og SEB.
