Reykjavíkurborg hefur lokið útboði í skuldabréfaflokkunum RVK 44 1 og RVKN 35 1.
Heildartilboð í RVK 44 1 voru samtals 1.730 m.kr. að nafnvirði á kröfunni 3,59%-3,80%. Ákveðið var taka tilboðum, samtals að nafnvirði 1.030 m.kr., á ávöxtunarkröfunni 3,65%.
Útistandandi fyrir útboð voru 5.320 m.kr. Heildarstærð flokksins er nú 6.350 m.kr. að nafnverði.
Heildartilboð í RVKN 35 1 voru samtals 3.575 m.kr. að nafnvirði á kröfunni 8,08%-8,30%. Ákveðið var taka tilboðum, samtals að nafnvirði 1.285 m.kr., á ávöxtunarkröfunni 8,20%.
Útistandandi fyrir útboð voru 29.400 m.kr. að meðtöldum eigin bréfum Reykjavíkurborgar vegna viðskiptavaktar 960 m.kr. Heildarstærð flokksins er nú 30.685 m.kr. að nafnverði.
Viðskiptavakar Reykjavíkurborgar, Arion banki, Íslandsbanki, Kvika banki og Landsbanki, höfðu umsjón með útboðinu. Uppgjör viðskipta fer fram þriðjudaginn 17. desember.
Nánari upplýsingar veitir:
Bjarki Rafn Eiríksson
skrifstofa fjárstýringar og innheimtu,
netfang: bjarki.rafn.eiriksson@reykjavik.is