Arion banki hf. hefur undirritað samninga við Íslandsbanka, Kviku og Landsbankann um viðskiptavakt á sértryggðum skuldabréfum útgefnum af Arion banka á Nasdaq Iceland hf.
Tilgangur samninganna er að efla viðskipti með þau skuldabréf sem samningarnir taka til í því skyni að eðlilegt markaðsverð skapist á skuldabréfunum og verðmyndun verði með skilvirkum og gagnsæjum hætti.
Viðskiptavakar munu daglega setja fram kaup- og sölutilboð í skuldabréfin. Lágmarksfjárhæð að nafnvirði skuldabréfa skal vera 80 m. kr. Skuldabréfaflokkarnir ARION CBI 29 og ARION CBI 48 eru undanskildir framangreindum skilyrðum og skal lágmarksfjárhæð tilboða í ARION CBI 29 vera 40 milljón kr. og skal lágmarksfjárhæð tilboða í ARION CBI 48 vera 20 milljón kr. Viðskiptavaka ber þó ekki að setja fram kaup- og sölutilboð í nýjan flokk skuldabréfa fyrr en flokkurinn hefur náð 3 ma kr. að stærð og skal lágmarksfjárhæð tilboða þá vera 20 m. kr. þar til flokkurinn hefur náð 5 ma kr. að stærð en þá skal lágmarksfjárhæð tilboða hækka í 60 m. kr. þar til flokkurinn hefur náð 10 ma kr. en þá skal lágmarksfjárhæð tilboða verða 80 m. kr.
Hámarksmunur kaup- og sölutilboða fer eftir árafjölda til lokagjalddaga á hverjum tíma sbr. neðangreinda töflu.
Árafjöldi til lokagjalddaga | Hámarksverðbil |
0-6 mán | Ekki skilgreint hámarksverðbil |
6 mán – 2 ár | 0,20% |
2-4 ár | 0,30% |
4-6 ár | 0,35% |
6-9 ár | 0,60% |
9-12 ár | 0,70% |
12-18 ár | 1,00% |
18 ár eða lengra | 1,15% |
Undanskildir frá ákvæðum um hámarksmun milli kaup og sölutilboða sbr. ofangreinda töflu eru verðtryggðir flokkar þar sem árafjöldi til lokagjalddaga er minni en 5 ár. Flokkarnir ARION CBI 25 og ARION CBI 26 falla þar undir. Viðskiptavakar skulu eftir sem áður setja inn kaup- og sölutilboð en ekki er skilgreindur hámarksmunur milli kaup og sölutilboða.
Arion banki greiðir viðskiptavökum þóknun og mun veita viðskiptavökum aðgang að verðbréfalánum. Hámarkslán í hverjum flokki sértryggðra skuldabréfa er 320 m.kr. að nafnverði fyrir markflokka en 80 m.kr. að nafnvirði fyrir aðra flokka.
Vinsamlegast beinið fyrirspurnum til:
Eiríks Magnúsar Jenssonar, forstöðumanns fjárstýringar, eirikur.jensson@arionbanki.is, s. 856 7468, eða Theodórs Friðbertssonar, forstöðumanns fjárfestatengsla Arion banka, ir@arionbanki.is, s. 856 6760