English Icelandic
Birt: 2023-07-07 13:33:53 CEST
Kvika banki hf.
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Kvika banki hf.: Vegna frétta af yfirtökutilboði í Kerecis hf.

Í ljósi nýlegra frétta um yfirtökutilboð Coloplast A/S á öllu hlutafé í Kerecis hf. („Kerecis“) vill Kvika banki hf. („Kvika“) koma eftirfarandi upplýsingum á framfæri.

Kvika á 76.671 hluti í Kerecis og á að auki kauprétt að 17.323 hlutum til viðbótar. Bókfært virði eignarhlutanna og kaupréttarins er 78,19 USD á hlut, eða um 954 m.kr. m.v. 30. júní 2023.

Kvika hefur ekki móttekið yfirtökutilboð en miðað við fyrirliggjandi opinberar upplýsingar er ljóst að verðmæti eignarhlutanna og kaupréttarins yrði talsvert umfram bókfært virði.

Fyrir frekari upplýsingar vinsamlegast hafið samband við fjárfestatengsl Kviku banka á netfanginu fjarfestatengsl@kvika.is eða í síma 540 3200.