Landsbankinn hf.: Niðurstaða útboðs sértryggðra skuldabréfaLandsbankinn lauk í dag útboði sértryggðra skuldabréfa þar sem tveir flokkar voru boðnir til sölu. Sjö tilboð að fjárhæð 1.600 m. kr. að nafnverði bárust í flokkinn LBANK CB 27 á ávöxtunarkröfu á bilinu 9,09%-9,25%. Tilboðum að fjárhæð 700 m.kr. var tekið á ávöxtunarkröfunni 9,11%. Heildarstærð flokksins verður 32.720 m. kr. eftir viðbótarútgáfuna. Sjö tilboð að fjárhæð 2.900 m. kr. að nafnverði bárust í flokkinn LBANK CB 29 á ávöxtunarkröfu á bilinu 8,38%-8,50%. Tilboðum að fjárhæð 2.900 m.kr. var tekið í flokkinn á ávöxtunarkröfunni 8,50%. Heildarstærð flokksins verður 6.940 m. kr. eftir viðbótarútgáfuna. Uppgjörsdagur er 18. október 2023. Arion banki, Íslandsbanki og Kvika sinna viðskiptavakt með sértryggða skuldabréfaflokka Landsbankans. Lánshæfiseinkunn sértryggðra skuldabréfa Landsbankans er A með jákvæðum horfum samkvæmt mati S&P. Sértryggðu skuldabréfin eru gefin út með leyfi frá Fjármálaeftirlitinu með vísan í lög nr. 11/2008 og reglur Fjármálaeftirlits nr. 190/2023. Nánari upplýsingar um skuldabréfin og tryggingasafnið má finna á vefsvæði fjármögnunar bankans, Fjármögnun Landsbankans - Landsbankinn.
|