Icelandic
Birt: 2021-05-21 17:53:09 CEST
Eik fasteignafélag hf.
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Eik fasteignafélag hf.: Stækkun á skuldabréfaflokknum EIK 100327

Eik fasteignafélag hf. hefur nú lokið stækkun á skuldabréfaflokknum EIK 100327. Skuldabréfin eru með lokagjalddaga þann 10. mars 2027 og bera fasta 1,445% verðtryggða vexti.

Seld voru skuldabréf að nafnverði 800 milljónir króna á ávöxtunarkröfunni 1,25%. Heildarstærð flokksins verður því í kjölfar stækkunarinnar 3.000 milljónir króna sem er hámarksstærð flokksins..

Stefnt er að uppgjöri viðskiptanna þann 27. maí næstkomandi og verður óskað eftir því að bréfin verði tekin til viðskipta í framhaldinu.

Íslandsbanki hafði umsjón með viðskiptunum og stækkun skuldabréfaflokksins.

Nánari upplýsingar veitir:

Lýður Heiðar Gunnarsson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs, lydur@eik.is, s: 590-2209 / 820-8980