Kaldalón hf.: Útgáfa á víxlum - niðurstaða útboðsKaldalón hf. hefur lokið sölu á óveðtryggðum sex mánaða víxlum í flokki KALD 24 1202. Tilboð bárust fyrir 1.580 milljónir kr. með flötum vöxtum á bilinu 10,15%-10,70% p.a. Seldir voru víxlar að nafnvirði 1.000 milljónir.kr. á 10,29% vöxtum. Greiðslu og uppgjörsdagur er mánudagurinn 3. júní 2024. Sótt verður um töku víxlanna til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland og verður fyrsti viðskiptadagur tilkynntur með að lágmarki eins dags fyrirvara. Landsbankinn hf. hafði umsjón með sölu víxlanna. Nánari upplýsingar veita: Sigurbjörg Ólafsdóttir, fjármálastjóri Kaldalóns hf. sigurbjorg.olafsdottir@kaldalon.is Gunnar S. Tryggvason s: 410 6709 / 821 2090 eða gunnars@landsbankinn.is
|