English Icelandic
Birt: 2022-04-28 10:15:00 CEST
Marel hf.
Reikningsskil

Marel: 1F 2022 Fjárfestakynning

Marel hf. birti uppgjör fyrir fyrsta ársfjórðung 2022 eftir lokun markaða þann 27. apríl 2022.

Meðfylgjandi má finna 1F 2021 fjárfestakynninguna sem farið verður yfir á rafrænum afkomufundi með markaðsaðilum í dag, fimmtudaginn 28. apríl 2022 kl. 8:30.

Þar munu stjórnendur kynna afkomu félagsins og helstu atriði úr rekstri á fyrsta ársfjórðungi.

Fundinum verður vefvarpað beint á www.marel.com/webcast og upptaka verður aðgengileg á www.marel.com/ir eftir fundinn.

Markaðsaðilar geta einnig hringt inn á fundinn:

  • IS: +354 800 7437 (PIN 37176101#)
  • NL: +31 20 721 9496
  • UK: +44 33 3300 9032
  • US: +1 631 913 1422 (PIN 37176101#)

Fjárhagsdagatal

  • 2F 2022 – 27. júlí 2022
  • 3F 2022 – 2. nóvember 2022
  • 4F 2022 – 8. febrúar 2023
  • AGM – 22. mars 2023

Fjárfestatengsl

Nánari upplýsingar veita fjárfestatengsl Marel í gegnum netfangið ir@marel.com og í síma 563 8001.

Um Marel

Marel er í fararbroddi á heimsvísu í þróun og framleiðslu tækja, hugbúnaðar og þjónustu fyrir matvælavinnslu á kjúklingi, kjöti og fiski. Í gegnum árin, hefur Marel skref fyrir skref, útvíkkað starfsemi sína. Með kaupunum á Wenger, sem tilkynnt voru 27. apríl, myndast fjórða stoðin í viðskiptamódeli Marel með áherslu á lausnum fyrir matvælavinnslu fyrir gæludýr, plöntuprótein og fóður fyrir fiskeldi. Hjá félaginu starfa yfir 7.500 manns í yfir 30 löndum, þar af um 750 á Íslandi. Marel velti um 1,4 milljarði evra árið 2021 en árlega fjárfestir Marel um 6% af veltu í nýsköpun og vöruþróun sem styður við aukna hagkvæmni, öryggi og sjálfbærni í matvælavinnslu. Félagið hefur verið skráð í Kauphöll Íslands síðan árið 1992 og var lokið við tvíhliða skráningu í Euronext Kauphöllina í Amsterdam árið 2019. Frekari upplýsingar má finna á marel.com/ir.

Viðhengi



Marel Q1 2022 Investor Presentation.pdf