Icelandic
Birt: 2026-03-26 14:00:42 CET
Reykjavíkurborg - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Reykjavíkurborg: Samningur um viðskiptavakt á eftirmarkaði með skuldabréf Reykjavíkurborgar

Samningur um viðskiptavakt á eftirmarkaði með skuldabréf Reykjavíkurborgar

Þann 26. mars 2026 samþykkti borgarráð samninga um viðskiptavakt með skuldabréfaflokkana RVKN 35 1, RVK 44 1, RVKG 48 1 og RVK 53 1 fyrir tímabilið 1. apríl 2026 til 31. mars 2027. Tilgangur samningsins er að stuðla að auknum seljanleika á eftirmarkaði og efla verðmyndun. Samningur um viðskiptavakt verður gerður við Arion banka, Íslandsbanka, Kviku banka, Landsbankann og Fossa fjárfestingarbanka.

Helstu atriði samningsins eru:

  • Tilboð skulu endurnýjuð eigi síðar en innan 15 mínútna frá því að þeim hefur verið tekið.
  • Hámarksmunur kaup- og sölutilboða viðskiptavaka skal mest vera 1,0% í RVKN 35 1, 1,25% í RVK 44 1 og 1,5% í  RVKG 48 1 og RVK 53 1.
  • Viðskiptavakar skuldbinda sig til að setja fram dagleg kaup- og sölutilboð í skuldabréfin í kauphöllinni fyrir opnun markaðar, sjá lágmarks tilboð í meðfylgjandi töflu:
SkuldabréfaflokkurTilboðsskylda að nafnverði Hámarksverðbil kaup- og sölutilboða
RVKN 35 125 m.kr.1,0%
RVK 44 115 m.kr.1,25%
RVKG 48 115 m.kr.1,5%
RVK 53 1  10 m.kr.1,5%
  • Eigi viðskiptavaki, á einum viðskiptadegi, viðskipti fyrir samtals 180 m.kr. að nafnvirði í þeim flokkum sem viðskiptavakt er með er honum heimilt að víkja frá hámarksmun kaup- og sölutilboða það sem eftir lifir viðskiptadags.



Frá gildistöku samninga um viðskiptavakt geta viðskiptavakar fengið tímabundin verðbréfalán í flokki þeirra skuldabréfa sem samningurinn tekur til.



Nánari upplýsingar veitir:

Bjarki Rafn Eiríksson

Skrifstofa fjárstýringar og innheimtu

Netfang: bjarki.rafn.eiriksson@reykjavik.is