English Icelandic
Birt: 2023-05-16 23:06:09 CEST
Orkuveita Reykjavíkur
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Orkuveita Reykjavíkur - Niðurstaða útboðs grænna skuldabréfa

Útboði á grænum skuldabréfum Orkuveitu Reykjavíkur lauk í dag, 16. maí 2023. Gefin voru út skuldabréf í skuldabréfaflokkunum OR020934 GB og OR180255 GB.

OR020934 GB ber fasta verðtryggða vexti og greiðir jafnar greiðslur á sex mánaða fresti með lokagjalddaga 2. september 2034. Áður hafa verið gefin út bréf að nafnverði kr. 14.577 m.kr. í flokknum.

Heildartilboð í flokkinn voru samtals 3.270 m.kr. að nafnvirði, þar sem ávöxtunarkrafa var á bilinu 3,10-3,23%. Tilboðum að fjárhæð 3.170 m.kr. að nafnvirði var tekið á ávöxtunarkröfunni 3,22%.

OR0180255 GB ber fasta verðtryggða vexti og greiðir jafnar greiðslur á sex mánaða fresti með lokagjalddaga 18. febrúar 2055. Áður hafa verið gefin út bréf að nafnverði kr. 23.221 m.kr. í flokknum.

Heildartilboð í flokkinn voru samtals 1.980 m.kr. að nafnvirði, þar sem ávöxtunarkrafa var á bilinu 2,92-3,02%. Tilboðum að fjárhæð 1.980 m.kr. var tekið á ávöxtunarkröfunni 3,02%.


Fossar fjárfestingarbanki hf. hefur umsjón með útgáfu og sölu skuldabréfanna sem og töku þeirra til viðskipta á markaði Nasdaq á Íslandi með sjálfbær skuldabréf.


Nánari upplýsingar:

Benedikt K. Magnússon, framkvæmdastjóri Fjármála OR, sími: 516 6100, netfang: Benedikt.K.Magnusson@or.is

Matei Manolescu, markaðsviðskiptum Fossa fjárfestingarbanka, sími: 522 4008, netfang: matei.manolescu@fossar.is