English Icelandic
Birt: 2024-03-13 16:41:00 CET
Landsbankinn hf.
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Landsbankinn hf.: Niðurstaða útboðs sértryggðra skuldabréfa

Landsbankinn lauk í dag útboði sértryggðra skuldabréfa þar sem tveir flokkar voru boðnir til sölu.

Eitt tilboð að fjárhæð 300 m. kr. að nafnverði barst í flokkinn LBANK CB 29 á ávöxtunarkröfu 7,56%. Tilboðinu er ekki tekið í flokkinn.

Ellefu tilboð að fjárhæð 3.760 m. kr. að nafnverði bárust í flokkinn LBANK CBI 30 á ávöxtunarkröfu á bilinu 3,57%-3,63%. Tilboðum að fjárhæð 2.220 m.kr. var tekið í flokkinn á ávöxtunarkröfunni 3,59%. Heildarstærð flokksins eftir viðbótarútgáfuna verður 11.060 m. kr.

Uppgjörsdagur er 20. mars 2024.

Arion banki, Íslandsbanki og Kvika sinna viðskiptavakt með sértryggða skuldabréfaflokka Landsbankans. Lánshæfiseinkunn sértryggðra skuldabréfa Landsbankans er A+ með stöðugum horfum samkvæmt mati S&P.

Sértryggðu skuldabréfin eru gefin út með leyfi frá Fjármálaeftirlitinu með vísan í lög nr. 11/2008 og reglur Fjármálaeftirlits nr. 190/2023. Nánari upplýsingar um skuldabréfin og tryggingasafnið má finna á vefsvæði fjármögnunar bankans, Fjármögnun Landsbankans - Landsbankinn.