English Icelandic
Birt: 2023-10-06 11:24:57 CEST
Icelandair Group hf.
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Icelandair: 8% fjölgun farþega í september og umtalsvert betri stundvísi

Icelandair flutti 416 þúsund farþega í september, 8% fleiri en í sama mánuði í fyrra. Það sem af er ári hefur félagið flutt um 3,4 milljónir farþega, 19% fleiri en yfir sama tímabil í fyrra.  
Farþegar til Íslands voru 175 þúsund, frá Íslandi 49 þúsund, 169 þúsund ferðuðust um Ísland og innan Íslands voru farþegar 23 þúsund. Sætanýting var 82,7% og einingatekjur héldu áfram að styrkjast. Stundvísi var 81%, sem er 10 prósentustiga aukning frá fyrra ári.  
Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair:  
„Það er ánægjulegt að sjá heilbrigðan vöxt í farþegafjölda á milli ára og áframhaldandi styrkingu einingatekna nú þegar þriðja ársfjórðungi lýkur en hann var stærsti fjórðungur í sögu Icelandair þegar litið er til fjölda flugferða. Ég vil þakka starfsfólki okkar fyrir frábært starf yfir sumarmánuðina og þann árangur sem þau hafa náð. Til marks um það hefur félagið nýlega hlotið tvenn verðlaun fyrir framúrskarandi þjónustu. Í september hlutum við nafnbótina fimm stjörnu flugfélag á APEX verðlaununum og í þessari viku unnum við dönsku ferðaþjónustuverðlaunin í flokki flugfélaga. Við erum mjög stolt af þessum viðurkenningum og þakklát okkar traustu viðskiptavinum fyrir að halda áfram að velja Icelandair.“ 

Tengiliðir: 
Fjárfestar: Íris Hulda Þórisdottir, Director Investor Relations. E-mail: iris@icelandair.is 
Fjölmiðlar: Ásdis Pétursdottir, Director Communications. E-mail: asdis@icelandair.is 

Viðhengi



09 Traffic Data.pdf