Icelandic
Birt: 2022-10-11 19:56:30 CEST
Síminn hf.
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Síminn hf. - Niðurstaða víxlaútboðs 11. október 2022

Síminn lauk í dag útboði á nýjum 6 mánaða víxlaflokki SIMINN230425.

Heildartilboð í flokkinn námu samtals 3.000 m.kr. að nafnvirði á flötum vöxtum á bilinu 7,10% - 7,39%. Tilboðum að fjárhæð 1.100 m.kr. var tekið á 7,20% flötum vöxtum.

Útgáfudagur og gjalddagi áskrifta er 18. október 2022. Stefnt er að töku til viðskipta á Nasdaq Iceland þann sama dag.

Fossar fjárfestingarbanki hefur umsjón með útgáfu og sölu víxlanna sem og töku þeirra til viðskipta á markaði Nasdaq Iceland.

Nánari upplýsingar veita:
Matei Manolescu, markaðsviðskipti, Fossar fjárfestingarbanki, sími: 522 4008, matei.manolescu@fossarmarkets.com.
Óskar Hauksson, fjármálastjóri, oskarh@siminn.is.
Helgi Þorsteinsson, forstöðumaður fjárstýringar, helgith@siminn.is.