English Icelandic
Birt: 2021-06-07 19:19:18 CEST
Orkuveita Reykjavíkur
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Orkuveita Reykjavíkur – Stækkun græna skuldabréfaflokksins OR180242 GB

Orkuveita Reykjavíkur lauk í dag, 7. júní 2021, stækkun á græna skuldabréfaflokknum OR180242 GB. Gefin voru út skuldabréf að nafnvirði 2.000 m.kr. og seld á ávöxtunarkröfunni 4,60%. Stærð flokksins eftir stækkun verður 4.198 milljónir að nafnvirði.

Fossar markaðir hafa umsjón með útgáfu og sölu skuldabréfanna sem og töku þeirra til viðskipta á markaði Nasdaq á Íslandi með sjálfbær skuldabréf.

Nánari upplýsingar veita:
Ingvar Stefánsson, framkvæmdastjóri Fjármála OR, sími: 516-6100, netfang: ingvar.stefansson@or.is 
Matei Manolescu, markaðsviðskipti, Fossar markaðir, sími: 522 4008, netfang: matei.manolescu@fossarmarkets.com