Íslandsbanki hefur í dag gefið út skuldabréf undir European Medium Term Notes (EMTN) útgáfuramma sínum með neðangreindum skilmálum:
Útgefandi: Íslandsbanki hf.
Nafnverð: SEK 500.000.000
Útgáfudagur: 13. apríl 2023
Gjalddagi: 13. apríl 2026
Vaxtagrunnur: 3 mánaða millibankavextir í sænskum krónum (STIBOR) +365bp
Skráning: Kauphöllin á Írlandi
ISIN: XS2611087557
Umsjónaraðilar: SEB, Swedbank
Grunnlýsingu USD 2.500.000.000 EMTN útgáfuramma bankans ásamt viðaukum má finna á vefsíðu fjárfestatengsla https://www.islandsbanki.is/is/vara/bankinn/fjarmognun-bankans.
Tengiliðir
Fjárfestatengsl - ir@islandsbanki.is
Um Íslandsbanka
Íslandsbanki er alhliða banki sem leggur áherslu á að koma til móts við þarfir viðskiptavina sinna og á sér langa sögu sem nær aftur til ársins 1875. Bankinn leggur áherslu á traustan rekstur og að hafa jákvæð áhrif í samfélaginu en hlutverk bankans er að vera hreyfiafl til góðra verka svo viðskiptavinir okkar nái árangri. Með framtíðarsýnina að vera #1 í þjónustu að leiðarljósi vinna þrjár viðskiptaeiningar þétt saman til þess að viðhalda góðum viðskiptasamböndum. Markaðshlutdeild bankans er sterk og rekur bankinn skilvirkasta útibúanetið á landinu og styður um leið við viðskiptavini sína á stafrænni vegferð þeirra. Umhverfið sem bankinn starfar í er eftirsóknarvert og er Íslandsbanki vel í stakk búinn að takast á við tækifærin framundan með öflugar tæknilegar stoðir og sterkan efnahagsreikning. Íslandsbanki er með lánshæfismatið BBB/A-2 frá S&P Global Ratings. Hlutabréf bankans eru skráð á Aðalmarkað Nasdaq Iceland.