Icelandic
Birt: 2022-04-07 11:23:16 CEST
Reykjavíkurborg
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Niðurstaða úr skuldabréfaútboði Reykjavíkurborgar

Reykjavíkurborg hefur lokið útboði í skuldabréfaflokkunum RVK 32 1 og RVK 53 1.

Í heildina bárust tilboð að nafnvirði 2.415 m.kr. í flokkana.

Heildartilboð í RVK 32 1 voru samtals 2.220 m.kr. að nafnvirði á bilinu 0,64% - 0,80%. Ákveðið var að taka tilboðum að nafnvirði 1.660 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 0,72%. Útistandandi fyrir útboð voru 15.623 m.kr. að nafnvirði. Heildarstærð flokksins er nú 17.283 m.kr. að nafnverði.

Heildartilboð í RVK 53 1 voru samtals 195 m.kr. að nafnvirði á bilinu 1,18% - 1,25%. Ákveðið var að hafna öllum tilboðum.

Uppgjörsdagur er þriðjudagurinn 12. apríl 2022.

Viðskiptavakar Reykjavíkurborgar, Arion banki, Íslandsbanki, Kvika banki og Landsbanki, höfðu umsjón með útboðinu.

Nánari upplýsingar veitir:

Helga Benediktsdóttir
Skrifstofustjóri fjárstýringar- og innheimtuskrifstofu
Netfang: helga.benediktsdottir@reykjavik.is        
Sími: 898-8272