Icelandic
Birt: 2022-12-09 08:46:45 CET
Alma íbúðafélag hf.
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Alma íbúðafélag hf.: útgáfa skuldabréfa

Alma íbúðafélag hf.: útgáfa skuldabréfa

Alma íbúðafélag hf. hefur lokið við stækkun á skuldabréfaflokknum AL101227 sem gefinn er út undir útgáfuramma félagsins.

Skuldabréfaflokkurinn AL101227 er verðtryggður á föstum vöxtum, til 6 ára, en endurgreiðsluferli afborgana fylgir 25 ára jafngreiðsluferli. Flokkurinn er veðtryggður samkvæmt almennu tryggingarfyrirkomulagi.

Seld voru skuldabréf að nafnverði 1.000 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 3,05% og verður heildarstærð flokksins því í kjölfar stækkunar 4.800 m.kr.

Eignarhaldsfélagið Mata hf. eigandi 57% Langasjávar ehf. móðurfélags Ölmu íbúðafélags hf. keypti 300 m.kr. í skuldabréfaflokknum AL101227.

Greiðslu- og uppgjörsdagur er fimmtudagur 15. desember 2022 og í kjölfarið verður sótt um að skuldabréfin verði tekin til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland hf.

ACRO verðbréf hf. hafa umsjón með sölu skuldabréfanna og töku þeirra til viðskipta.

Nánari upplýsingar veitir:

Sigurður Rúnar Pálsson, fjármálastjóri, í síma 848 5290 eða sigurdur@al.is