Reykjavíkurborg hefur lokið útboði í skuldabréfaflokkunum RVK 44 1 og RVKN 35 1.
Heildartilboð í RVK 44 1 voru samtals 300 m.kr. að nafnvirði á kröfunni 3,69%. Ákveðið var taka öllum tilboðum, samtals að nafnvirði 300 m.kr., á ávöxtunarkröfunni 3,69%.
Útistandandi fyrir útboð voru 8.710 m.kr. að meðtöldum eigin bréfum Reykjavíkurborgar vegna viðskiptavaktar 800 m.kr. Heildarstærð flokksins er nú 9.010 m.kr. að nafnverði.
Heildartilboð í RVKN 35 1 voru samtals 4.550 m.kr. að nafnvirði á kröfunni 8,32%-8,59%. Ákveðið var taka tilboðum, samtals að nafnvirði 2.060 m.kr., á ávöxtunarkröfunni 8,38%.
Útistandandi fyrir útboð voru 30.685 m.kr. að meðtöldum eigin bréfum Reykjavíkurborgar vegna viðskiptavaktar 960 m.kr. Heildarstærð flokksins er nú 32.745 m.kr. að nafnverði.
Viðskiptavakar Reykjavíkurborgar, Arion banki, Íslandsbanki, Kvika banki og Landsbanki, höfðu umsjón með útboðinu. Uppgjör viðskipta fer fram þriðjudaginn 25. febrúar.
Nánari upplýsingar veitir:
Bjarki Rafn Eiríksson
skrifstofa fjárstýringar og innheimtu,
netfang: bjarki.rafn.eiriksson@reykjavik.is