Icelandic
Birt: 2021-12-01 11:26:16 CET
Íslandshótel hf.
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

IH 140647 – Niðurstöður fundar skuldabréfaeigenda

Fundur eigenda IH 140647 sem haldinn var miðvikudaginn 1. desember 2021 samþykkti eftirfarandi breytingar á skilmálum skuldabréfsins.

  1. Breyting á sérstökum skilyrðum skuldabréfsins um fjárhagsleg skilyrði

Samþykkt var breyting á sérstökum skilyrðum skuldabréfsins þannig að skuldabréfaeigendur samþykkja að veita útgefanda undanþágu frá þeim fjárhagslegu skilyrði sem sett eru í stafliðum I. og II. um takmörkun skuldsetningar og eiginfjárkvöð á tímabilinu frá og með 30. júní 2021 til og með 30. júní 2022. Ennfremur var samþykkt að skuldabréfaeigendur muni ekki krefjast gjaldfellingar eða grípa til annarra samningsbundinna úrræða gagnvart útgefanda samkvæmt skilmálum skuldabréfanna um fjárhagsleg skilyrði á sama tímabili.

Samkvæmt ofangreindu skal útgefandi aftur standast fjárhagsleg skilyrði á ný frá og með prófunardeginum 31. desember 2022.

Frekari upplýsingar veita:
Kolbrún Jónsdóttir, fjármálastjóri Íslandshótela – kolbrun.jonsdottir@islandshotel.is – 859 9844