Landsbankinn hf.: Niðurstaða skiptiútboðs sértryggðra skuldabréfaÍ tengslum við útboð Landsbankans á sértryggðum skuldabréfum í gær fór fram skiptiútboð þar sem fjárfestar áttu kost á því að greiða fyrir skuldabréf í útboðinu með afhendingu skuldabréfa í flokki LBANK CBI 24 á fyrirframákveðna verðinu 99,914. Niðurstaða skiptiútboðs leiðir til þess að Landsbankinn kaupir 2.120 m.kr. að nafnverði í flokki LBANK CBI 24. Uppgjör endurkaupanna fer fram þann 15. október 2024.
|