English Icelandic
Birt: 2024-10-09 14:03:00 CEST
Landsbankinn hf.
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Landsbankinn hf.: Niðurstaða skiptiútboðs sértryggðra skuldabréfa

Í tengslum við útboð Landsbankans á sértryggðum skuldabréfum í gær fór fram skiptiútboð þar sem fjárfestar áttu kost á því að greiða fyrir skuldabréf í útboðinu með afhendingu skuldabréfa í flokki LBANK CBI 24 á fyrirframákveðna verðinu 99,914.

Niðurstaða skiptiútboðs leiðir til þess að Landsbankinn kaupir 2.120 m.kr. að nafnverði í flokki LBANK CBI 24.

Uppgjör endurkaupanna fer fram þann 15. október 2024.