English Icelandic
Birt: 2023-01-05 18:00:00 CET
Arion banki hf.
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Arion banki hf.: Niðurstaða útboðs sértryggðra skuldabréfa

Arion banki hf. lauk í dag útboði á sértryggða skuldabréfaflokknum ARION CB 27 fyrir samtals 3.420 m.kr.

Í heild bárust 19 tilboð að fjárhæð 4.420 m.kr að nafnverði bárust í flokkinn ARION CB 27 á ávöxtunarkröfu á bilinu 7,29-7,35%. Tilboð að nafnvirði 3.420 m.kr. á kröfunni 7,32% voru samþykkt.

Stefnt er að töku skuldabréfanna til viðskipta í Nasdaq Ísland þann 12. janúar 2023.

Umsjónaraðili útboðsins er Markaðsviðskipti Arion banka.


Arion banki hf. Niurstaa utbos sertryggra skuldabrefa.pdf