Icelandic
Birt: 2022-12-20 17:42:32 CET
Sýn hf.
Innherjaupplýsingar

Sýn hf.: Sýn hf. og Ljósleiðarinn ehf. undirrita samninga

Vísað er til fyrri kauphallartilkynninga frá 5. september og 15. desember sl.

Sýn hf. og Ljósleiðarinn ehf. undirrituðu í dag kaupsamning um kaup Ljósleiðarans á stofnneti Sýnar og langtíma þjónustusamning milli félaganna.  

Eins og áður hafði verið greint frá er umsamið kaupverð 3.000 m.kr. Mun kaupsamningsgreiðsla innt af hendi í áföngum á næstu mánuðum og verður kaupverðið að fullu greitt eigi síðar en 12 mánuðum frá afhendingu hinna seldu eigna. Hinar seldu eignir eru bókfærðar á 564 m.kr. og nemur söluhagnaður því 2.436 m.kr. og mun bókfærast að fullu við afhendingu.  

Samhliða kaupsamningi hefur verið gerður þjónustusamningur milli félaganna til 12 ára um heildsöluaðgang og þjónustu yfir burðar- og aðgangsnet Ljósleiðarans, sem og þjónustu um internettengingar til útlanda.

Gert er ráð fyrir að viðskiptin hafi jákvæð áhrif á rekstrarkostnað Sýnar um 100 m.kr. nettó á ári. Þá lækki árleg fjárfestingaþörf í kringum 120 m.kr. yfir samningstímann.
  
Viðskiptin eru eftir sem áður með fyrirvara um samþykki Samkeppniseftirlitsins.  

Yngvi Halldórsson, forstjóri Sýnar hf.:

„Það er ánægjulegt fyrir Sýn að klára samninga við Ljósleiðarann þar sem við seljum öflugt stofnnet sem félagið hefur byggt upp síðustu 22 ár. Með þessu skerpum við enn betur á fókus okkar á viðskiptavini félagsins og treystum á Ljósleiðarann í uppbyggingu og viðhaldi hágæða ljósleiðaranets um allt land á samkeppnishæfum kjörum. Með þjónustusamningi tryggjum við okkur aðgang að öruggum tengingum, auknum hraða og háu þjónustustig næstu 12 árin.  Þessi einföldun á rekstri innviða félagsins skilar sér í lægri fjárfestingaþörf og lægri rekstrarkostnaði til framtíðar. Viðskiptin munu styrkja efnahag og lausafjárstöðu Sýnar hf. og gera félagið enn betur í stakk búið að sækja fram og auka markaðshlutdeild á fjarskipta- og fjölmiðlamarkaði.“