Icelandic
Birt: 2021-11-23 15:07:11 CET
Sýn hf.
Innherjaupplýsingar

Sýn hf.: Samkeppniseftirlitið samþykkir sölu á óvirkum innviðum Sýnar hf.

Samkeppniseftirlitið samþykkir sölu á óvirkum innviðum Sýnar hf.
Sýn hf. undirritaði þann 31. mars síðastliðinn samninga við Digital Bridge Group Inc., áður Colony Capital Inc., um sölu á óvirkum farsímainnviðum félagsins. Í dag samþykkti eftirlitið kaupin án skilyrða og telur ekki forsendur til að aðhafast frekar í málinu.