Lánasjóður sveitarfélaga - Niðurstaða úr skuldabréfaútboðiLánasjóður sveitarfélaga var með skuldabréfaútboð í LSS150434 og LSS151155 þann 18. ágúst 2021. Uppgjör viðskipta fer fram 20. ágúst 2021. Alls bárust tilboð í LSS150434 að nafnvirði ISK 4.321.000.000 á bilinu 0,95% - 1,10%. Ákveðið var að taka tilboðum að nafnvirði ISK 2.721.000.000 á ávöxtunarkröfunni 1,04%. Heildarstærð flokksins að nafnvirði fyrir útboðið var ISK 94.748.152.565 en er nú ISK 97.469.152.565. Alls bárust tilboð í LSS151155 að nafnvirði ISK 40.000.000 á ávöxtunarkröfunni 1,39%. Ákveðið var að afþakka tilboðið. Heildarstærð flokksins að nafnvirði er ISK 26.273.000.000.
Nánari upplýsingar veitir: Örvar Þ. Ólafsson Sími: 515 4947 T-póstur: orvar@lanasjodur.is
|