English Icelandic
Birt: 2024-10-22 22:42:56 CEST
Orkuveita Reykjavíkur
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Orkuveitan - Niðurstaða útboðs grænna skuldabréfa

Útboði á grænum skuldabréfum Orkuveitu Reykjavíkur lauk í dag, 22. október 2024. Gefin voru út skuldabréf í skuldabréfaflokkunum OR031033 GB, OR0280845 GB og OR180255. Heildartilboð námu 4.440 m.kr. að nafnvirði.

OR031033 GB ber fasta 8,30% óverðtryggða vexti og greiðir jafnar afborganir á sex mánaða fresti með lokagjalddaga 3. október 2033. Áður hafa verið gefin út bréf að nafnverði 4.630 m.kr. í flokknum.

Heildartilboð í flokkinn voru samtals 1.860 m.kr. að nafnvirði, þar sem ávöxtunarkrafa var á bilinu 8,19% - 8,40%. Tilboðum að fjárhæð 1.760 m.kr. að nafnvirði var tekið á ávöxtunarkröfunni 8,29%.

OR280845 GB ber fasta verðtryggða vexti og greiðir jafnar greiðslur á sex mánaða fresti með lokagjalddaga 28. ágúst 2045. Flokkurinn ber 3,70% fasta vexti og er uppgreiðanlegur að 13 árum liðnum. Áður hafa verið gefin út bréf að nafnverði 3.430 m.kr. í flokknum.

Heildartilboð í flokkinn voru samtals 1.340 m.kr. að nafnvirði, þar sem ávöxtunarkrafa var á bilinu 3,90% - 3,99%. Tilboðum að fjárhæð 1.340 m.kr. að nafnvirði var tekið á ávöxtunarkröfunni 3,99%.

OR180255 GB ber fasta 2,60% verðtryggða vexti og greiðir jafnar greiðslur á sex mánaða fresti með lokagjalddaga 18. febrúar 2055. Áður hafa verið gefin út bréf að nafnverði 35.766 m.kr. í flokknum.

Heildartilboð í flokkinn voru samtals 1.240 m.kr. að nafnvirði, þar sem ávöxtunarkrafa var á bilinu 3,43% - 3,49%. Tilboðum að fjárhæð 1.200 m.kr. var tekið á ávöxtunarkröfunni 3,475%.

Fossar fjárfestingarbanki hf. hefur umsjón með útgáfu og sölu skuldabréfanna sem og töku þeirra til viðskipta á markaði Nasdaq á Íslandi með sjálfbær skuldabréf.

Nánari upplýsingar:

Snorri Hafsteinn Þorkelsson, framkvæmdastjóri Fjármála Orkuveitunnar, sími: 516 6100, netfang: snorri.hafsteinn.thorkelsson@or.is

Matei Manolescu, markaðsviðskiptum Fossa fjárfestingarbanka, sími: 522 4008, netfang: matei.manolescu@fossar.is