Icelandic
Birt: 2023-01-12 10:24:43 CET
Reykjavíkurborg
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Niðurstaða úr skuldabréfaútboði Reykjavíkurborgar

Reykjavíkurborg hefur lokið útboði í skuldabréfaflokkunum RVKN 35 1 og RVK 53 1.

Í heildina bárust tilboð að nafnvirði 1.995 m.kr. í flokkana.

Heildartilboð í RVKN 35 1 voru samtals 480 m.kr. að nafnvirði á bilinu 7,63%-7,73%. Ákveðið var að taka tilboðum, samtals að nafnvirði 300 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 7,63%. Útistandandi fyrir útboð voru 20.040 m.kr. að nafnvirði. Heildarstærð flokksins er nú 20.340 m.kr. að nafnverði.

Heildartilboð í RVK 53 1 voru samtals 1.515 m.kr. að nafnvirði á bilinu 2,83%-2,88%. Ákveðið var að taka öllum tilboðum, samtals að nafnvirði 1.515 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 2,88%. Útistandandi fyrir útboð voru 22.470 m.kr. að nafnvirði. Heildarstærð flokksins er nú 23.985 m.kr. að nafnverði.

Uppgjörsdagur er þriðjudagurinn 17. janúar 2023.

Viðskiptavakar Reykjavíkurborgar, Arion banki, Íslandsbanki, Kvika banki og Landsbanki, höfðu umsjón með útboðinu.

Nánari upplýsingar veita:

Bjarki Rafn Eiríksson, sími 852-5589
Karl Einarsson, sími 693-9358

Netfang: fjarstyring@reykavik.is