Arion banki hf. lauk í dag útboði á sértryggða skuldabréfaflokknum ARION CB 27 fyrir samtals 2.500 m.kr.
Í heild bárust 7 tilboð að fjárhæð 2.500 m.kr að nafnverði bárust í flokkinn ARION CB 27 á ávöxtunarkröfu á bilinu 6,49-6,55%. Tilboð að nafnvirði 2.500 m.kr. á kröfunni 6,55% voru samþykkt.
Í samræmi við útboðstilkynningu bauðst Arion banki til að kaupa til baka ARION CB 22 gegn sölu í útboðinu á fyrirframákveðna verðinu 100,185. Niðurstaða skiptiútboðs leiðir til þess að Arion banki kaupir 1.280 m.kr. að nafnverði í flokknum ARION CB 22.
Stefnt er að töku skuldabréfanna til viðskipta í Nasdaq Ísland þann 12. júlí 2022.
Umsjónaraðili útboðsins var Markaðsviðskipti Arion banka.
Vinsamlegast beinið fyrirspurnum til:
Eiríks Magnúsar Jenssonar, forstöðumanns fjárstýringar, eirikur.jensson@arionbanki.is, s. 856 7468, eða Gunnars Erlingssonar, Mörkuðum, gunnar.erlingsson@arionbanki.is, s. 858 8392