English Icelandic
Birt: 2021-12-20 22:09:05 CET
Kvika banki hf.
Heildarfjöldi atkvæða og heildarfjöldi hluta

Kvika banki hf.: Tilkynning um nýtingu áskriftarréttinda og hækkun hlutafjár

Stjórn Kviku banka hf. („Kvika“ eða „félagið“) hefur síðan á síðasta stjórnarfundi tekið fyrir níu tilkynningar eigenda áskriftarréttinda að hlutum í félaginu, að nafnvirði samtals 10.958.337 kr., um nýtingu réttindanna.

Allar tilkynningarnar eru vegna áskriftarréttinda sem gefin voru út og seld á árunum 2017 og 2019 á grundvelli bráðabirgðaákvæða II og IV í samþykktum félagsins.

Af framangreindum tilkynningum voru fjórar um nýtingu áskriftarréttinda sem voru gefin út og seld á árinu 2019 á grundvelli bráðabirgðaákvæðis II í samþykktum félagsins, þ.e. áskrift að 1.625.000 nýjum hlutum í félaginu og fimm tilkynningar um nýtingu áskriftarréttinda sem voru gefin út og seld á árinu 2017 á grundvelli bráðabirgðaákvæðis IV í samþykktum félagsins, þ.e. áskrift að 9.333.337 hlutum í félaginu.

Framangreint felur í sér nýtingu á áskriftarréttindum að samtals 10.958.337 nýjum hlutum. Kaupverð hinna nýju hluta nemur kr. 97.804.611 og því er reiknað meðalgengi 8,9251330.

Með vísan til samninga um útgáfu áskriftarréttindanna er stjórn skylt að hækka hlutafé til að mæta skuldbindingum samkvæmt réttindunum og gefa út hlutafé, skrá rétthafa í hlutaskrá og tryggja skráningu þeirra sem rétthafa í verðbréfamiðstöð, sbr. lög nr. 7/2020 um verðbréfamiðstöðvar, uppgjör og rafræna eignaskráningu fjármálagerninga.

Stjórn nýtti í dag heimild sína samkvæmt bráðabirgðaákvæði II og IV í samþykktum félagsins til að hækka hlutafé þess í þeim tilgangi að mæta nýtingu framangreindra áskriftarréttinda. Hlutafé félagsins verður því hækkað um kr. 10.958.337 og mun eftir hækkun standa í kr. 4.907.394.936 að nafnvirði, með útgáfu nýrra hluta.

Heimild stjórnar til hlutafjárhækkunar á grundvelli bráðabirgðaákvæðis II mun í kjölfarið vera kr. 76.625.000 að nafnvirði og á grundvelli bráðabirgðaákvæðis IV kr. 116.700.014 að nafnvirði.

Hlutafjárhækkunin verður tilkynnt til og skráð af Fyrirtækjaskrá Skattsins og nýir hlutir verða gefnir út af Nasdaq verðbréfamiðstöð og óskað verður eftir töku þeirra til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland.

Tilkynning þessi er í samræmi við verklag sem félagið tilkynnti um þann 19. september 2019.