English Icelandic
Birt: 2023-03-28 19:49:15 CEST
Kauphöll Íslands hf.
Hlutabréfamarkaður

Origo hf. - taka hlutabréfa úr viðskiptum

Nasdaq Iceland hf. („Kauphöllin“) hefur samþykkt beiðni Origo hf. („Origo“ eða „félagið“) um að taka hlutabréf félagsins úr viðskiptum, sbr. tilkynningu frá félaginu dags. 26. mars þar sem kom fram að félagið hefði óskað eftir töku hlutabréfanna úr viðskiptum.

Síðasti viðskiptadagur með hlutabréf Origo (auðkenni: ORIGO) í Kauphöllinni verður 25. apríl 2023.