Icelandic
Birt: 2026-06-24 11:00:00 CEST
Reykjavíkurborg - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Reykjavíkurborg: Skuldabréfaútboð RVK 44 1

Í dag, miðvikudaginn 24. júní, efnir Reykjavíkurborg til útboðs á skuldabréfaflokknum RVK 44 1.

Í dag, miðvikudaginn 24. júní, efnir Reykjavíkurborg til útboðs á skuldabréfaflokknum RVK 44 1. Heimild til lántöku á árinu 2026 er 14.000 m.kr. og þetta er þriðja útboð ársins.

RVK 44 1 ber fasta 3,75% verðtryggða vexti og greiðir jafnar greiðslur á sex mánaða fresti með lokagjalddaga 21. maí 2044. Heildarstærð RVK 44 1 fyrir þetta útboð nemur alls 15.395 m.kr. að nafnvirði að meðtöldum eigin bréfum Reykjavíkurborgar vegna viðskiptavaktar 800 m.kr.

Útboðið verður með hollenskri aðferð, þar sem öll skuldabréf verða seld á hæstu ávöxtunarkröfu sem tekið verður. Reykjavíkurborg áskilur sér rétt til að taka hvaða tilboði sem er að hluta eða í heild eða hafna öllum. Niðurstöður útboðsins verða birtar opinberlega eigi síðar en næsta virka dag eftir útboð.

Áætlaður uppgjörsdagur er þriðjudagurinn 30. júní nk.

Reykjavíkurborg hefur boðið viðskiptavökum, sem eru Arion banki, Fossar fjárfestingarbanki, Íslandsbanki, Kvika banki og Landsbanki, að hafa umsjón með útboðinu og taka á móti tilboðum. Tilboðum skal skilað inn á netfangið fjarstyring@reykjavik.is fyrir kl. 16:00 í dag.

Nánari upplýsingar veitir:



Bjarki Rafn Eiríksson

Skrifstofa fjárstýringar og innheimtu

Netfang: bjarki.rafn.eiriksson@reykjavik.is