Icelandic
Birt: 2021-05-17 18:15:35 CEST
Reitir fasteignafélag hf.
Árshlutareikningur (Q1 og Q3)

REITIR: Rekstrarhagnaður 1.782 m.kr. á fyrstu þremur mánuðum ársins 2021

Stjórn Reita fasteignafélags hf. hefur samþykkt árshlutareikning samstæðunnar fyrir fyrstu þrjá mánuði ársins 2021. Helstu lykiltölur reikningsins eru:

Lykiltölur rekstrar3M 20213M 2020
Tekjur2.7502.882
Rekstrarkostnaður fjárfestingareigna-799-814
Stjórnunarkostnaður-169-163
Rekstrarhagnaður fyrir matsbreytingu1.7821.905
Matsbreyting fjárfestingareigna907-2.135
Rekstrarhagnaður/tap2.689-230
Hrein fjármagnsgjöld-1.382-1.040
Heildarhagnaður/Heildartap996-1.032
Hagnaður/tap á hlut1,3 kr.-1,5 kr.
NOI hlutfall56,1%62,3%
Stjórnunarkostnaðarhlutfall5,3%5,3%
   
Lykiltölur efnahags31.3.202131.12.2020
Fjárfestingareignir154.016152.606
Handbært og bundið fé2.1532.088
Heildareignir157.778156.491
Eigið fé53.04652.828
Vaxtaberandi skuldir84.82884.878
Eiginfjárhlutfall33,6%33,8%
Skuldsetningarhlutfall57,0%57,6%
   
Lykiltölur um fasteignasafn3M 20213M 2020
Nýtingarhlutfall (tekjuvegið)94,9%94,3%

Fjárhæðir eru í milljónum króna nema annað sé tekið fram. Hlutföll í rekstrarreikningi eru reiknuð sem hlutfall heildartekna.

Guðjón Auðunsson, forstjóri

„Fátt kom stjórnendum Reita á óvart í rekstri félagsins á fyrsta ársfjórðungi og er reksturinn í takti við áætlanir og útgefnar horfur.

Áhrif kórónuveirufaraldursins á leigutekjur hafa farið minnkandi. Leiðrétt fyrir áhrifum Covid-19 aukast leigutekjur um 4,5% milli ára. Stjórnendur gera ráð fyrir að áhrif faraldursins á tekjur félagsins fari áfram minnkandi en munu þó gæta út árið 2021, eða þar til ferðaþjónustan nær vopnum sínum á ný.

Útleiga fyrstu mánuði ársins gekk mjög vel og mun áhrifa þess gæta þegar líða tekur á árið.”

Nánari upplýsingar og kynningarfundur

Reitir bjóða markaðsaðilum og fjárfestum á rafrænan kynningarfund þar sem Guðjón Auðunsson, forstjóri, og Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, munu kynna uppgjörið. Fundurinn verður haldinn kl. 8:30 þriðjudaginn 18. maí n.k.

Nauðsynlegt er að skrá sig á fundinn, eftir skráningu fá þátttakendur staðfestingarpóst með nánari upplýsingum. Hægt verður að bera upp spurningar á fundinum með skriflegum hætti.

Skráning á kynningarfundinn: https://us02web.zoom.us/webinar/register/5716052657619/WN_AzClVDY4QJq8dtfuOPxaLA

Kynningarefni fundarins er aðgengilegt á fjárfestasíðu Reita, reitir.is/fjarfestar

Nánari upplýsingar veita Guðjón Auðunsson, forstjóri, í síma 575 9000 eða 660 3320, og Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, í síma 575 9000 eða 669 4416.

Um Reiti

Reitir fasteignafélag hf. er íslenskt hlutafélag. Samstæða félagsins samanstendur af móðurfélaginu, Reitum fasteignafélagi hf., ásamt dótturfélögum, sem öll eru að fullu í eigu móðurfélagsins. Starfsemi félagsins felst í eignarhaldi, útleigu og umsýslu atvinnuhúsnæðis sem er að stærstum hluta verslunar- og skrifstofuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu. Fasteignir í eigu félagsins eru um 135 talsins, um 445 þúsund fermetrar að stærð. Meðal fasteigna félagsins má nefna stærstan hluta verslunarmiðstöðvarinnar Kringlunnar, Spöngina og Holtagarða, skrifstofubyggingar við Höfðabakka 9 og Vínlandsleið ásamt húsnæði höfuðstöðva Icelandair Group, Sjóvár, Origo og Advania og skrifstofu Landspítalans við Skaftahlið 24. Hótelbyggingar í eigu Reita eru m.a. Hótel Borg og Hotel Hilton Reykjavík Nordica ásamt Icelandair Hotel Reykjavík Natura. Stærstu leigutakar Reita eru Hagar, Flugleiðahótel, ríki og sveitarfélög.

Viðhengi



Reitir fasteignafelag 31.3.2021 - arshlutareikningur.pdf
Reitir fasteignafelag 31.3.2021 - kynning v2.pdf