Icelandic
Birt: 2026-05-19 23:13:58 CEST
Alma íbúðafélag hf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Alma íbúðafélag hf.: Útgáfa á nýjum skuldabréfaflokki - AL040629

Alma íbúðafélag hf. hefur lokið sölu á skuldabréfum í nýjum skuldabréfaflokki AL040629 sem gefinn er út undir útgáfuramma félagsins og veðtryggður samkvæmt almennu tryggingarfyrirkomulagi. Skuldabréfaflokkurinn AL040629 er til 3 ára, með einni afborgun höfuðstóls á lokagjalddaga og ber fljótandi vexti tengdum 1 mánaða REIBOR vöxtum að viðbættu 1,24% álagi.

Alls bárust tilboð að nafnverði kr. 3.220.000.000 á bilinu 1,19-1,35% ofan á 1 mánaða REIBOR. Ákveðið var að taka tilboðum að nafnverði kr. 320.000.000 á 1,24% ofan á 1 mánaða REIBOR.

Greiðslu- og uppgjörsdagur er fyrirhugaður miðvikudagurinn 27. maí nk. og í kjölfarið verður sótt um töku skuldabréfanna til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland. Kauphöll mun tilkynna um fyrsta dag viðskipta með a.m.k. eins dags fyrirvara.

Íslandsbanki hf. hafði umsjón með sölu skuldabréfanna og töku þeirra til viðskipta.

Grunnlýsing útgáfuramma, endanlegir skilmálar og önnur skjöl er varða útgáfu skuldabréfaflokksins og töku skuldabréfanna til viðskipta í Kauphöll verða birt á vefsíðu félagsins: Alma íbúðafélag | Skuldabréfafjármögnun

Útboðið var undanþegið gerð lýsingar á grundvelli c og d -liðar, 4. mgr. 1. gr. reglugerðar Evrópusambandsins og ráðsins (ESB) nr. 2017/1129 um lýsingu sem birta skal þegar verðbréf eru boðin í almennu útboði eða tekin til viðskipta á skipulegum markaði, sbr. lög nr. 14/2020 um sama efni.

Nánari upplýsingar veita:

Verðbréfamiðlun Íslandsbanka, vbm@islandsbanki.is

Ingólfur Árni Gunnarsson, framkvæmdastjóri Ölmu íbúðafélags hf., ingolfur@al.is