Niðurstaða skiptiútboðs leiðir til þess að Arion banki kaupir 600 m.kr. að nafnvirði í flokknum ARION CBI 25.
Í tengslum við útboð Arion banka í gær á sértryggða skuldabréfaflokknum ARION CBI 28 bauðst eigendum flokksins ARION CBI 25 að selja bréf sín á fyrirframákveðna hreina verðinu 99,8387 gegn kaupum í útboðinu.
Niðurstaða skiptiútboðs leiðir til þess að Arion banki kaupir 600 m.kr. að nafnvirði í flokknum ARION CBI 25.
Uppgjör endurkaupanna fer fram þann 12. febrúar 2025.
Markaðsviðskipti Arion banka hafa umsjón með útboðinu.
Vinsamlegast beinið fyrirspurnum til:
Theodórs Friðbertssonar, fjárfestatengslum Arion banka, ir@arionbanki.is, s. 856 6760, eða Eiríks Dórs Jónssonar, forstöðumanns fjárstýringar, eirikur.jonsson@arionbanki.is, s. 856 7171